Árgangur 82 Sigló

Flottasti bekkurinn

21.07.2008 22:38:26 / siglo82

Jæja, á að taka hitting eða??

Jæja börnin góð...

Nú eru ekki nema rétt tæpar tvær vikur í Versló á Sigló og því ekki seinna vænna en að fara negla eitthvað fast svo fólk geti skipulagt sig almennilega en eins og hún Vilborg veit best þá er ekkert gaman nema hlutirnir séu skipulagðir í þaula og einhver taki að sér að stjórna... :)

Guðrún Sif er búin að stinga upp á garðpartýi hjá sér og er ég hjartanlega til í það af öllu lífi og sál í öðru veldi sinnum tveir og ég held að við séum það flest. Hinsvegar á eftir að ákveða dagsetningu og ég persónulega mæli með annaðhvort föst. eða lau. Palli er á Bíóinu á föst. og því væri gaman að plana þetta í kringum það. Það er eitthvað minna að gerast á laugardagskvöldið en þó er hægt að hugga sig við það að Stúlli og Dúi eru að spila á Allanum..... (Bjössi!! Hvar er metnaðurinn???). Reyndar er síðan ball með Bermúda í Bíósalnum og svo ætla ég að spila á Bíó barnum þannig að það er eitthvað að gerast en ekkert svona svaka.

Sem sagt... Það er annaðhvort föst. eða lau. Palli á Föst. Bermúda og Eisi á lau.

Legg til að Guðrún, ásamt einhverjum að af þessum kjarnakonum sem eru í bekknum okkar taki sig til og plani eitthvað skemmtó í kringumó þettó. Þarf ekkert að vera mikið. Bara ákveða tímasetningu í rauninni.

Þannig er það nú bara

Þetta er bara spurning um föst. eða lau..... föst eða lau föst eða lau föst eða lau.

Góðar stundir.

Eisi


» 21 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 22:02:44 / siglo82

Hittingur??



Vill bara tékka á í tilefni þess að það eru 10 ár frá því við sögðum skilið við Grunnskólann hvort ekki sé ástæða til að taka smá hittara vegna þeirra tímamóta? 





Kv.Jói





» 32 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 12:51:31 / siglo82

Gleðileg Jól og nýjir nágrannar

 

 

Best að blása og hnoða smá lífi í síðuna..

 

Til að deila með ykkur, þá kom lítil skvísa í heiminn 10.12.07 og síðan hef ég með brosi á vör og dreymandi augnaráði (svefnleysi) skipt um kúkableyjur. 

 

Enn í morgun vaknaði ég með skelfingu þegar ég var að bera útí tunnu næturafrek afkvæmisins

ég fletti upp lokinu á tunnunni og á mig starði þessi líka ógeðslega brúna rotta og ég er ekki frá því að kvikindið hafi glott þegar það sá svipinn á mér.

Reyndar var ég pínu viðbúin svona uppákomu vegna þess að erlenda vinnuaflið sem býr í einhverjum tugum fyrir ofan mig hefur gengið frekar sorglega um ruslatunnurnar, sameignina og nánasta nágrenni.

 

Og svona í aðdraganda Jólanna þá hef ég ákveðið að ég ætla ekki gera neitt í málinu fyrr en milli jóla og nýárs (einhver verður að éta óbjóðinn frá liðinu á efrihæðinni) en lét samt gæjann í kjallaranum vita að hann hefði eignast fleiri nágranna og að þeir væru líklegast svangir.

 

En hér er búið að skreyta og breyta og allt flott og fínt, allir hraustir og aðeins ein jólagjöf eftir að kaupa.

Mig langar bara að óska ykkur Gleðilegra Jóla og góðu nýju ári.

Megi komandi ár verða það besta hjá okkur hingað til.

 

 

Kv.Jói

 

     


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 16:55:11 / siglo82

Ástþór Hérastúfur orðinn pabbi!!

Jæja þá kom að því :D

Lítill konungur kom í heiminn kl 11:35 í dag. 16 merkur og 51cm. Öllum heilsast vel..

Ástþór og Erla ég óska ykkur innilega til hamingju með litla snúð og bíð spenntur að knúsa hann

Kær kveðja Ívar Elefsen


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 15:37:24 / siglo82

Stundum, þá er ekkert um annað að ræða en að skrifa bloggfærslu á síðu sem enginn heimsækir lengur,

Já góðir hálsar, árgangur 82 úr Grunnskóla Siglufjarðar er heldur betur í lægð svo ekki sé meira sagt. Mér finnst fátt skemmtilegra en að fá fréttir af ykkur og kíki ég hingað inn á hverjum einasta degi til þess að athuga hvort einhver hafi verið svo fallegur að skrifa hingað inn en alltaf verð ég fyrir vonbrigðum. Hingað og ekki lengur, ég segi stopp og tek málin í mínar eigin hendur.

 Einhverra hluta vegna þá á ég auðveldara með að peppa mig upp í að blogga á þessa síðu frekar en mína eigin, skil ekki útaf hverju það er.

 Það er allvega allt fínt að frétta af mér. Sumarið var barasta alveg ágætt og gerðum við skötuhjúin ýmislegt til þess að létta lund og rækta andann. T.d skelltum við okkur til Koben að á tónleika með mínum ástkæru drengjum í strákabandinu Pearl Jam. Við gistum á ógeðslegasta hóteli í heiminum og hugsa ég að austur-bekkurinn á Hlemm hafi verið þægilegri heldur en þessi skítakompa sem við gistum á. Það þarf ekkert að taka það fram en tónleikarnir voru framúrskarandi og grét ég í gegnum fyrstu fimm lögin eða svo en eins og allar konur vita þá eru karlmenn sem eru ekki hræddir við að gráta fyrir framan konuna sína einstaklega fallegir og vel uppaldir menn :) Ég var að spila alveg hellings í sumar með Gotta bróður og afrekaði ég m.a.s að spila á 30 afmælinu hjá Heiðari Austmann...................... Veit ekki alveg hvort ég komi til með að segja barnabörnunum mínum frá þeirri reynslu en það sem var eftirminnilegast var hve mamma hans var dauðadrukkin... Var alltaf að biðja um hin og þessi óskalög, þvoglumælt, illa til höfð og einhvernvegin öll skökk og ómöguleg. Ég var í fríi í allan Ágúst og var að sjálfsögðu á Sigló um Versló. Stefnan var að spila ekki neitt alla helgina og eyða henni með henni Fjólu en úr varð að ég var að spila fjórum sinnum á tveimur dögum, ekkert sérstaklega skemmtilegt þar sem fullt fólk um verslunarmannahelgi á Sigló vill eiginlega bara fá að heyra Síldarvalsinn og gömul lög með Geirmundi, en það reddaðist þó.

 Restina af sumarfríinu var ég í sveitinni hjá tengdó þar sem ég afrekaði m.a. að drepa mig næstum því á kajak. Þannig er mál með vexti að ég hef aldrei áður farið á kajak, karlmennið ég var hinsvegar ekki alveg á þeim buxunum að fara sér eitthvað hægt í byrjun og óð ég útí óvissuna með hugrekki eitt að vopni. Fjóla var með mér og ég náði að tolla í helvítis kajaksdrusluni í u.þ.b 15 mínútur áður en ég hvolfdi og hélt ég væri liðið lík. Ég hef aldrei séð Fjólu eins hrædda og það er ekki laust við að ég hafi orðið freeeeeeeekar hræddur líka sko, sýndi það samt að sjálfsögðu ekki og sagði eitursvalur við Fjólu "Ég ætlaði að gera þetta".

 Þessar fréttir sem eru hér að ofan eru samt sem áður frekar ómerkilegar þegar litið er til fréttana sem ég fékk í byrjun Júlí. Fjólan vakti mig með bros á vör en vott af móðursýki í augunum og tilkynnti mér að ég væri að verða pabbi!!!!!!!!!!!! Jebbs, það er að koma annar Eisi Cool í heiminn, ja, nú eða önnur Fjóla Cool. Alveg ljóst að þarna verður verðugur arftaki Eddie Vedder sem kemur í heiminn. Fjólan á að eiga í mars á næsta ári og ég skal sko segja ykkur það að ég er gjörsamlega að drepast úr spenningi. Búinn að láta mig dreyma um þetta lengi og gæti því ekki verið hamingjusamari.

 Jæja, hvernig væri svo að rífa sig upp af rassgatinu og halda þessari síðu gangandi, í sameiningu. Ef þið vitið ekki notendanafnið og lykilorðið þá er bara að hafa samband við mig eða Ívar. Endilega blogga eitthvað skemmtilegt eða bara hvað sem er. Alveg ljóst að við verðum að þjappa okkur saman og gera eitthvað skemmtilegt.

 Já og svo var Grétar tæklaður í rassabossann sinn um helgina og er víst með ADIDAS merkið á vinstri rasskinninni. Þurfti að fara útaf blessaður drengurinn og við það skeit landsliðið á sig, já eða þeir áttu allavega ekki góðan leik eftir að Gretsky Hönk fór útaf.

 Takk fyrir mig og árfram KS

Eisi Cool


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 07:46:37 / siglo82

Amml Amml Ammli Ammmmli

Jæææææææjjjjjjaaaaaa

Mig langaði bara að láta vita af því að ég á afmæli á sunnudaginn næsta og ætla að halda upp á það á laugardaginn. Afmælið verður haldið á Kristnibraut 67 og er mæting klukkan átta. Það verða einhverjar veigar á staðnum en fólk er hvatt til þess að koma með eitthvað með sér líka.

Allir velkomnir sem hafa áhuga á því að mæta.

 

Kv. Eisi Cool


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 16:24:09 / siglo82

Ýmislegt að frétta.

Já eins og fram kemur hér að ofan þá er nú heldur betur ýmislegt að frétta.

 Til dæmis get ég tilkynnt ykkur það að það er hafin útsala í NEXT. Stelpurnar eru heldur betur í gjafastuðinu þar sem þær eru að bjóða allt að 40% afslátt. Um að gera að kíkja á það.

 

nú!

 Það er meira sko. Núna er hægt að vera Coke meginn í lífinu einfaldlega með því að kíkja aftann á miðan á Coke flöskunni þinni. Það er náttúrlega Coke-sumar núna þannig að það er um að gera og taka þátt. Þegar þú færð "Reyndur Aftur" í fimmtugasta skiptið þá skaltu bara brosa við og reyna aftur.

 

Nú!

 Það er meira!!! Glöggir lesendur hafa tekið eftir því að það er hægt að lesa Fréttablaðið í dag einfaldlega með því að smella með bendlinum hér til hægri á þar til gerðann "link". Þetta er mikil búbót í okkar daglega líf og er hægt að lesa sér til um Grétar Rafn Steinsson í íþróttafréttum, Íbba og Hobie í "Dagbók Lögreglunar" og Vilborgu og Lydíu í "Tónlist". En þær voru víst að gefa út "my heart will go on" á smáskífu....

 

Takk fyrir mig og ég þakka fyrir áheyrnina.

 

Tívolí-Hnakkinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 15:38:42 / siglo82

Samkvæmt mínum kokkabókum

Jæja kindern

Ég er rétt að jafna mig eftir þetta svaðalega djamm sem var síðast, get enn ekki horft á bjór án þess að finna til velgju, maður er svoddan kjúklingur!

En þeir sem eiga eftir að borga, og bara leiðrétta mig ef ég er að fara með bölvaða vitleysu, eru: Rebekka (matur og bjór), Hulda (matur og bjór), Arna (matur), Þorsteinn (matur), Grétar (matur og bjór) og Eisi (bjór).

Endilega borga sem fyrst, ég veit alveg hvað þið eruð loðin um lófana;)

Kveðja

Vilborg


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 00:01:39 / siglo82

ÆÆ greyið kreditkortið mitt!

Hæhæ

jæja krakkar nú er komið að skuldadögum. Maturinn kostaði 15000 kr. Og við vorum   12 sem vorum með í því. Ég, Hulda, Lýdía, Rebekka, Arna, Ívar, Ástþór, Nonni, Trausti, Þorsteinn, Grétar og Biggi. Sem gerir 1250 kr á mann.

Bjórinn kostar 1000 kr á mann. Og sökum ölvunar týndi ég miðanum þar sem ég hafði skrifað niður nöfnin á þeim sem voru með í því. Leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál eða gleymi einhverjum, sem dauðlangar að borga, en þeir sem voru með í bjórnum, eru: ég, Hulda, Lýdía, Rebekka, Arna (GREITT), Ívar(GREITT), Ástþór, Nonni (GREITT), Jóhannes(GREITT), Robbi(GREITT), Trausti(GREITT), Sibba (GREITT), Grétar, Biggi (GREITT) og Auður (GREITT), Eisi

Sem sagt 2250 kr fyrir þá sem voru bæði með í mat og bjór.

Reikningnúmerið er 526-18-550392

og kennitalan er 161182-3039

kveðja

Vilborg fyllibytta


» 16 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 16:58:40 / siglo82

LOKSINS!!!! ALLIR AÐ VERA MEÐ!

Ágætu bekkjarfélagar...

Þá er hittingurinn kominn á hreint og er dagskráin svo hljóðandi.

Við munum hittast heima hjá Grétari Laugardaginn 9júní kl. 19:00 (tímalega) í Fjarðarseli 21 Breiðholti.
Þar fáum við okkur að borða og verður kínverskur matur frá Nings í boði, svo verður bara
spjallað eða gert eitthvað glens þar til við höldum á Ölver í Glæsibæ. Þangað stefnum við að vera
komin um kl 21:00 og verður kútur í boði meðan birgðir endast ;) Líklegast verðum við með
sér sal útaf fyrir okkur til að þenja raddböndin í karókí fram eftir kvöldi, hellingur er til af
lögum og getið þið sé dæmi um þau hér --->
http://www.sportbarinn.is/?section=karaokie
Eftir Ölver getum við svo skundað í miðbæinn á þá staði sem okkur líkar best eða þá að þið
stelpurnar getið komið í partý heim til mín ;)

Markmiðið er að hafa þetta ekki of dýrt fyrir okkur og reiknum við með því að þetta verði
um 1000 til 1500kr. á mann en fer algjörlega eftir því hversu margir verða með..
Grétar ætlaði að borga góðan hlut í kútnum sem kostar litlar 28þús minnir mig og svo
eigum við c.a 30þús í bekkjarsjóð sem við ætlum að taka smá úr, en ekki of mikið

Planið með þennan hitting er algjörlega búinn að vera á seinustu snúningum en eins og þið vitið þá
er Grétar búinn að vera að spila með Landsliðinu á svo eftirminnilegan hátt og þurfti að einbeita
sér meira af þeim en að plana hittinginn ;) En allt saman er þetta loksins klárt og núna
þurfið þið kæru félagar að skrifa í komment hvort þið komið og hvort þið komið í annað hvort
matinn eða bara ölver!! Þetta er nauðsynlegt svo við getum séð hversu margir þetta verða
í heildina til að geta reiknað út kostnað

Verður þetta ekki bara eintóm hamingja og dúndrandi snilld ?????? koma svo!! dugleg að kommenta!

Hér getið þið séð staðsetninguna á heimili Grétars og vona ég að þið áttið ykkur á þessu
-----> 
http://ja.is/simaskra?q=fjarðarsel%2021&order=magic&map=808305#row808305

Látið vita fólk!! við munum líka reyna að hringja í flesta!

kv. Ívar Elefsen


» 18 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 22:59:49 / siglo82

Djammidjammidjamm

Nei dömur mínar og herrar, þetta er langt frá því að vera að detta upp fyrir!

Grétar lenti á fróninu í dag, og þeir Ívar ætla að leggja lokahönd á skipulagningu á morgun, og láta vita um leið og þeir geta um hvernig þetta verður allt.

Hlakka til að sjá ykkur öll á laugardagskvöldið! :D

kv. Vilborg


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 17:04:46 / siglo82

plan með hitting

Sæl og blessuð blessaða fólk

Nú er ætlunin að hafa hitting hér í rvk í júní og er verið að tala um að fara í karókí á ölver. Þetta er hugmynd sem er í smíðum frá Atvinnumanninum Grétari og er hann ólmur í að hitta okkur öðlingana meðan hann verður á landinu. ef einhverjar aðrar hugmyndir eru til staðar þá er hægt að skoða allt saman.. flott hugmynd með útilegu hjá Huldu og Krissu sem verður vonandi að veruleika, en því miður þá getum við ekki gert þennan hitting sem við Grétar höfum rætt um að útileguhitting.. Því Grétar verður aðeins júnímánuðinn hér á landi og gerir ekki ráð fyrir því að geta farið í þannig gjörning.. :S Allavega.... Þá er planið karókí og drukkið fram eftir kveldi þeir sem vilja :) Það er í athugun að redda tilboðum og slíkt svo þetta þurfi ekki að vera svo kostnaðarsamt fyrir okkur . Málið er að finna dagsetningu fyrir þetta sem er þá í júní og erum við að tala um þessar eftirfarandi helgar :

8-9 júní
15-16 júní
22-23 júní
29-30 júní

Þetta eru þær helgar sem atvinnumaðurinn getur verið með oss og vonar hann svo innilegar að vel verði tekið í þetta þar sem hann missti af aðal djamminu í fyrra. Við getum haft allavega keppnir í karókíinu og verðlaunað sigurvegararna .. einstaklingskeppni er hægt að hafa sem og hópkeppni.. þetta þurfum við bara að skoða þegar nær dregur.
 

Það sem við þurfum að sjá er það hvernig stemmarinn er fyrir þessu og hvaða dagsetning hentar flestum og vill ég því að þið látið í ykkur heyra í kommentum !! Allir saman! Þetta verður ekkert annað enn stuð og glens :haha:

ef einhverjar hugmyndir aðrar eru í gangi eða einhverjar athugasemdir endilega látið þá vita svo hægt sé að ræða málin

Við meigum nú ekki beila á Atvinnumanninum fyrir það sem hann gaf okkur í fyrra sem svo eftirminnilega kom vel að notum og lét fólk vagga :haha:

Látið í ykkur heyra og það sem fyrst og farið verður sanngjörnustu leiðir elskurnar

ps... ný skoðunarkönnun

Kv. Ívar Elefsen og (Grétar litli)


» 31 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 22:14:18 / siglo82

Jææææja

Jæja börnin góð, er allt gjörsamlega steindautt hérna???

 Er ekki kominn tími á að rífa þetta aðeins upp og koma af stað einhverri umræðu hérna? Það er ekki eins og enginn komi hérna inn þar sem síðan er með 30-40 heimsóknir að meðaltali á virkum degi :-) Allir að koma inn og athuga hvort einhver annar hafi skrifað eitthvað hehe :)

 

 Það er allt ágætt að frétta af mér. Það eru 55 dagar þar til ég fer á tónleika með Pearl Jam í annað sinn á tveimur árum en í þetta sinn verða það bara við skötuhjúin sem förum. Tónleikarnir eru í Danmörku og verð ég eiginlega að viðurkenna að ég hlakka eilítið til :) :) Við Fjóla erum að flytja úr Grafarvoginum  og ætlum að búa okkur heimili í íbúð sem vinur minn og yfirmaður hann Jón Ásgeir var að kaupa sér í New York. Ég sagði bara si svona “Hey, Nonni Geiri, ég er að vinna á FM 957 og þar sem að ég hef ekki fengið kauphækkun í smá tíma þá skaltu barista kaupa handa mér íbúð í New York” Nei annars, við erum að flytja í Árbæinn, nánar tiltekið í Þyngás númer 20. Þriggja herbergja íbúð og loksins fæ ég drauminn uppfylltann og hef auka herbergi fyrir hljóðfærin og Eddie Vedder altarið mitt.

 

Mar heyrir alltaf einstaka sinnu í bekkjarfélögunum og er ég búinn að taka saman nokkrar fréttir svona rétt til þess að slá upp hérna á síðuna.

 

Jóhannes Björn Arelakis (aka Dansfélaginn) er nýbúinn að kaupa sína fyrstu íbúð. Strákurinn keypti sér ásamt spúsu sinni henni Lindu í Grafarvoginum, rétt hjá Mr. Plumberboy Eyjó Cool (fæst sem strippari í gæsapartý fyrir lítið, mjög lítið). Jóki fór einnig fyrir stuttu í fyrsta sinn á Old Trafford að sjá leik með Man Utd en eins og einhverjir vita þá er kallinn mikill Mannari og var víst í transi allan tímann sem á leiknum stóð . Hafði það m.a. á orði við mig að þegar úðarakerfið á vellinum fór í gang og  hann fékk væna gusu af Júnæted vatni yfir sig hafi hann grátið eins og smákrakki, fullorðinn maðurinn J

 

Mikil hræðsla greip um sig hjá þeim Íbba Kant og Trausta (Hobie) Skrensen um daginn. Eldur varð laus nærri heimkynum þeirra á Lækjartorgi og var ekki laust við að  strákarnir hafi verið smeykir. Hressingarskálinn hefur um langt skeið verið þeirra annað heimili og séð þeim fyrir skemmtun., áfengi, lifandi tónlist, skonsum og síðast en alls ekki síðst, gistingu, þegar þess hefur verið óskað. Það skal þó satt segjast að það hefur aðallega verið hann Íbbi Cool sem þurft hefur á gistingunni að halda, enda síþreyttur maður að eðlisfari. Allt fór þó vel á endanum og Hressó slapp. Sömu sögu er þó ekki að segja af Pravda en sá hnakka staður brann til kaldra……kola þ.e.a.s. Fréttir herma að um íkveikju hafi verið að ræða og þar hafi verið á ferðinni Grétar nokkur Steinsson eða Atvinnumaðurinn eins og hann er kallaður dagsdaglega. Eins og margir muna þá hélt Grétar afmælisveislu á Pravda fyrir ekki svo margt löngu. Talið er að Grétar hafi borið eld að staðnum eftir að Pravda neitaði að borga uppsett verð fyrir þá þjónustu sem Grétar veitti þeim, þ.e.a.s að halda afmælið sitt á staðnum. Því eins og allir vita þá leigir fræga og fallega fólkið ekki staði til skemmtanahalds, staðirnir taka fræga og fallega fólkið á leigu.

 

Annars er það að frétta af Atvinnumanninum að hann og félagar hans hjá AZ Alkmaar rétt misstu af Hollenska meistara tittlinum. AZ þurfti einungis að vinna mótherja sína 1-0  til þess að tryggja sér titilinn en töpuðu 3-2 í ævintýralegum leik. Markmaður AZ fékk rautt á 19 min og Grétari var skipt útaf fyrir varamarkvörð sem stóð sig ekki betur en svo að hann fékk á sig þrjú mörk. Þá hugsaði Grétar að sjálfsögðu “ Ohhhhh! Ef bara við hefðum Eisa Cool til þess að fylla upp í markið L ” en þetta hugsar hann alltaf þegar illa gengur. Já og svo er við þetta að bæta að uppáhalds liðið hans Grétars, Leeds Udt, fell  um deild um helgina þannig að ekki var það til þess að bæta lýðaninn hjá þessum annars magnaða dreng.

 

Allir að hugsa jákvæðar hugsanir til Grétars akkúrat………….. NÚNA!!!!!! Ok stopp, þetta er nóg.

 

Jææææææja……. Ekki veit ég nú hvað ég á meira að segja akkúrat núna enda eru þetta eiginlega einu bekkjafélgarnir sem ég hef haft samband við upp á síðkastið…… Kominn tími til þess að ráða bót á því og splæsa saman í hitting!!!!!!!! Hvernig væri að halda Eurovision party þann 12. maí???? Bara svona hitting eins og í keiluhöllinni um daginn. Við Gotti erum að spila heima hjá Íbba og Hobie sama kvöld þannig að við getum öll farið þangað eftir partýið……. Það væri allavega algjör snilld að gera eitthvað bráðlega. Kominn tími til HA?!!

 

Kv. Eisi Cool


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 18:44:01 / siglo82

Þetta er málið á fimmtudaginn!!




Ekkert rugl!!!! Þetta er auðvitað málið!

 

kv Ívar Elefsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 17:21:38 / siglo82

Ekki gleyma :)

Snilldin Ein

 

kv Eisti K


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Kennarar okkar
Skemmtiatriði
Reikningsn�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�

Reikningsnúmer : 0526-18-550392
Kennitala : 161182-3039

Verum svo dugleg að leggja inn aur :)